ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Jú, það kemur einmitt fram í viðtali í Morgunblaðinu þann 10. apríl við títtnefndan Friðrik Árna Friðriksson Hirst þar sem hann segir að álitamálunum sem varða stjórnarskrána sé í raun slegið á frest og við höfum reyndar haldið því fram líka. Hann telur að í þeirri leið felist ákveðin málamiðlun. Og síðan er haft eftir honum, með leyfi forseta:
„Fyrr eða síðar þurfi hins vegar að taka á ný afstöðu til álitaefna sem varða stjórnarskrána.“
Þau álitaefni sem verið er að vísa hér inn í framtíðina með þeirri leið sem hér er farin og skapa lagalega óvissu, eins og menn hafa bent á, fleiri en einn og fleiri en þrír, er það sem veldur áhyggjum. Vegna þess, og ég hefði átt að koma með það í andsvari hér áðan, að málið er það stórt að við getum ekki áfrýjað því. Við gerum oft mistök hér á Alþingi sem eru þá leiðrétt með nýrri lagasetningu (Forseti hringir.) í lengd eða bráð. En um það er ekki að ræða hér (Forseti hringir.) vegna þess að það er engin önnur leið til baka en sú (Forseti hringir.) að segja upp EES-samningnum í heilu lagi ef þetta verður eins og við (Forseti hringir.) óttuðumst.