149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:17]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það kann að hljóma gáleysislega, því þakka ég hv. þingmanni kærlega fyrir þessa spurningu, að sá sem hér stendur hefur ekki kannað það í forsætisnefnd hvort þetta mál teljist þingtækt. Ég geri náttúrlega ráð fyrir því að þingfundaskrifstofan, sem er skipuð úrvalsstarfsfólki, hafi farið í gegnum þetta mál og talið það vera þannig en auðvitað væri full ástæða og er full ástæða til að gera fyrirspurn hvað þetta varðar þannig að ekki leiki nokkur einasti vafi á því að þetta mál uppfylli öll skilyrði.

Það hefur verið sagt mjög víða og kemur t.d. fram í umsögn Jóns Baldvins Hannibalssonar sem þekkir þennan samning einna best allra núlifandi manna á Íslandi. Hann segir í niðurlagi álitsgerðar þar sem hann fer yfir fyrirvarana, með leyfi forseta:

„Niðurstaðan er því sú, að það sé óráðlegt að flana að lögleiðingu um tengingu við sameiginlega markaðinn nú með haldlitlum eða haldlausum fyrirvörum, og alls ónógri vitneskju um „hinar margvíslegu afleiðingar“.“ — Sem var sem sagt orðtak sem var haft fyrr fram í textanum.

Auðvitað er það þannig og það hljóta allir að sjá þegar við erum með mál í höndunum þar sem verulegur vafi leikur á að málið standist stjórnarskrá, þegar verulegur vafi leikur á, og nú er ég að reyna að vera kurteis, að fyrirvarar þeir sem gerðir hafa verið séu nokkurs virði, þ.e. þegar þeir finnast af því að maður er búinn að fá nasasjón af því hvernig þeir eru, að þá er náttúrlega ekki hægt annað en grípa til varna fyrir bæði stjórnarskrá og þjóð og reyna (Forseti hringir.) að koma í veg fyrir að þetta mál fari svo búið hér í gegn.