ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég tel að mikið gagn sé að þeirri umræðu sem hér hefur spunnist um það hvar mörk framsalsins geta legið og hefur hv. þm. Jón Þór Ólafsson tekið upp það atriði sem lýtur að heimild erlendra stofnana til að beita sektarákvörðunum gagnvart fjármálafyrirtækjum. Við ræddum þetta hér fyrr í dag og ég tók undir það viðhorf sem ég álít að einkenni álit þeirra Friðriks Árna og Stefáns Más, að ekki sé saman að jafna fjármálafyrirtæki sem starfar í alþjóðlegu umhverfi og því sem varðar orkuauðlindir þjóðarinnar. Í þessu liggur að það er þá matskennt hvernig þessum mælikvörðum er beitt og ekki er til neitt skapalón eða (Forseti hringir.) endanlegir, tölulegir mælikvarðar, heldur er þetta mat hverju sinni.
Hv. þm. Karl Gauti Hjaltason flutti hér ágæta ræðu sem ég þakka honum fyrir: Er hann sammála því að þetta hljóti ævinlega að vera matskennt?