ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Já, það er nú með lögfræðina að stundum er ekki hægt að mæla hlutina í metrum eða kílóum eða neinu slíku eins og í stærðfræðinni, þannig að það verður alltaf vandamál. Þess vegna erum við kannski staddir í þeim sporum að á þetta verður ekki lögð nein mælistika sem lesið verður af nema þetta sé svo skýrt, sem sjaldnast er, að það sé augljóst. En þessir sérfræðingar, Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst, telja í sinni álitsgerð að það sé verulegum vafa bundið að þetta rúmist innan stjórnarskrárinnar, og eiga þeir þar aðallega við 8. gr. reglugerðar nr. 713 og reyndar fleiri atriði, sem (Forseti hringir.) ganga ansi nálægt stjórnarskránni.
(Forseti (GBr): Enn er minnt á tímamörk. Það er ein mínúta.)