149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:45]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Búið er að ræða þriðja orkupakkann í 135 klukkustundir og fluttar hafa verið ótal ræður um að vinna þurfi orkustefnu fyrir íslenska þjóð og fyrir Ísland. Það er verið að vinna að þeirri stefnu. Ég vil benda á að unnið er sérstaklega að 22 punktum, sem eru helstu punktarnir í verkefninu. Hvað hefur hv. þingmaður minnst á marga af þeim punktum í ræðum sínum? Við erum ekki að fara að taka upp orkustefnu Evrópu á Íslandi. Við erum að vinna okkar eigin stefnu. Ég hélt að öllum væri ljóst hvert við erum að fara. Ég hélt að öllum væri ljóst hvers konar hagsmunir eru á bak við það að taka ekki upp erlenda orkustefnu á Íslandi. Ég hvet hv. þingmenn Miðflokksins til að kynna sér þá vinnu sem er í gangi varðandi orkustefnuna og þá (Forseti hringir.) 22 punkta sem koma fram með þeirri stefnu þar sem er komið að ýmsum orkukostum íslenskrar þjóðar til lengri framtíðar.