ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna eða ábendinguna um að ég ætti að kynna mér orkustefnuna og þá punkta sem þar eru. Ég vil benda hv. þingmanni á að margt af því sem hefur komið fram í þessari umræðu, sem er orðin talsvert löng, ég man ekki hversu löng, mætti skoða áður en menn hefta saman orkustefnuna. Ég ætla ekki að fara yfir hvað það getur verið, ég hef engan tíma til þess.
Ég vil einnig benda hv. þingmanni á að menn ættu að skoða innleiðingu orkutilskipana eitt, tvö og þrjú — og fjögur, sem er væntanleg — mjög vandlega þegar þeir vinna orkustefnuna og þau áhrif sem þær geta haft innan lands. Taka menn t.d. mið af fjórða orkupakkanum þegar þeir eru að gera orkustefnu fyrir Ísland? Stendur til að innleiða hann líka? Verður þá ekki líka sagt: Heyrðu, við verðum að innleiða orkupakka fjögur, við erum búin að innleiða númer eitt, tvö og þrjú?