149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:10]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni andsvarið. Til að svara spurningunni hvernig orkupakki þrjú tengist umræðunni um orkustefnu Íslands og vinnu við hana þá hélt ég að það blasti við. Ég held að ég hafi meira að segja sagt það beinlínis í ræðunni áðan að ég teldi óvarlegt annað en að klára þá vinnu sem verið er að vinna einmitt við smíði orkustefnu áður en við göngum lengra í innleiðingu orkupakka Evrópusambandsins. Ég hef ekki talað nógu skýrt áðan ef þetta lá ekki fyrir.

Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hvetur okkur í Miðflokknum til þess að kynna okkur erindisbréf hópsins sem nú vinnur að gerð orkustefnu. Það erindisbréf þekki ég ágætlega og það var lesið upp úr því áðan. Það er ekkert í því erindisbréfi sem dregur úr áhyggjum mínum gagnvart innleiðingu þriðja orkupakkans, ekki neitt. Ég hef sagt það mjög skýrt að sú vinna á að klárast þannig að við gerum þetta á okkar forsendum en séum ekki að aðlaga okkar stefnu, mögulega, einhverjum pökkum sem við höfum fengið senda að utan. Við eigum að klára orkustefnuna því að ég held að þar sé verið að vinna mjög góða vinnu. Ég veit að það er Norðlendingar góður í þeirri vinnu fyrir hönd Miðflokksins.

Ég held að ég hafi svarað spurningu þingmannsins en til að ramma það inn ætti í mínum huga stefnan að liggja fyrir fyrst, það væri rétt röð hlutanna. Þegar við höfum í huga að iðnaðarráðherra hefur beinlínis sagt að það séu engin vandkvæði við það að fresta málinu fram á haustþing 2019 (Forseti hringir.) þá skil ég bara ekki hvers vegna við nýtum okkur ekki það tímasvigrúm.