149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:12]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ástæðan fyrir ég spyr hvernig þetta tvennt tengist, þ.e. langtímaorkustefna fyrir íslenskt samfélag til 20–30 ára og þriðji orkupakkinn, er sú að það eina sem orkupakki þrjú snýst um er flutningur á raforku um grunnvirki yfir landamæri. Orkupakki þrjú mun ekki hafa áhrif á neitt gagnvart langtímaorkustefnu okkar fyrir íslenska þjóð og nýtingu hennar, hvernig við höldum forræði yfir orkuauðlindunum eða flytjum orkuna um landið, þannig að það sé ljóst. Þetta snýst um grunnvirki yfir landamæri, flutning á orku þar. Við munum móta okkur orkustefnu, íslenskt samfélag, eins og við erum að vinna að núna til næstu 20– 30 ára, á (Forseti hringir.) forsendum okkar og fyrir hagsmuni okkar.