ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Þór Ólafssyni fyrir andsvarið. Þessi spurning um stjórnarskrána og þanþol hennar eða eitthvað slíkt í þessu sambandi er í mínum huga þannig í þessu máli að það hafa komið fram aðilar, málsmetandi aðilar, lögfræðingar og lögspekingar, og talað um að það sé einfaldlega komið að þolmörkum. En þetta er ekki fullyrðing heldur sett fram sem álit. Í þessu máli gætum við verið komin á þann stað að það sé gengið of langt. Þegar maður heyrir slík varnaðarorð þá vill maður staldra við, skoða málið betur og koma því á þann stað þar sem það yrði sett á hreinan flöt, með því t.d. eins og við höfum margoft sagt, að vísa því aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar. Til að byrja með ætti alla vega að fresta málinu til haustsins og leiða frekari upplýsingar í ljós. Það hefur sýnt sig í þessari umræðu að það er alltaf eitthvað að koma í ljós sem menn vissu ekki af áður. Þannig horfi ég á málið og þarna stíg ég niður fæti.