ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ef ég skil þingmanninn rétt þá staldrar hann við ef það eru sérfræðingar sem benda á þetta. Ég er að reyna svolítið að ná því nákvæmlega hvar mörkin eru eða alla vega eins nálægt og við getum komist. Þannig að það skiptir máli ef það eru einhverjir sérfræðingar sem segja þetta. Kannski þurfa þeir að vera sæmilega málsmetandi sérfræðingar eða hvað? Er nóg einn sérfræðingur? Það er kannski eitthvað matskennt hjá þingmanninum. Það voru sérfræðingar sem vöruðu við þessu þegar var verið að innleiða fjármálaeftirlitsreglugerðina. Menn geta náttúrlega skipt um skoðun og menn geta gert mistök. En þetta var í tíð ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Ég veit ekki betur en hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson hafi lagt það mál fram. Var það ekki þannig? Ókei, en þetta var alla vega í tíð ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs. Og ég var hér uppi í ræðupúlti og sagði: Við verðum að láta stjórnarskrána njóta vafans. Er (Forseti hringir.) það þarna sem þingmaður myndi segja: Nei, nú þurfum við að fara aftur til EES-nefndarinnar. Skil ég þetta rétt? (Forseti hringir.) Ef það er einhver vafi í sérfræðingasamfélaginu þá myndi hann stíga niður fæti og segja: (Forseti hringir.) Aftur til EES-nefndarinnar.