149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:29]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir andsvarið. Nei, ég hef ekki orðið var við þennan fyrirvara í atvinnuveganefnd. Ég verð að viðurkenna að ég var í fríi um daginn þegar hann var til umræðu í nefndinni þannig að ég er ekki nógu vel að mér í því sambandi. En ég hef heyrt það í ræðum hv. þingmanns, fyrirspyrjandans Karls Gauta Hjaltasonar, að leit hans að fyrirvörum hafi ekki borið mikinn árangur. Þeir fyrirvarar sem menn hafa verið að tala um eru að mínu mati og margra annarra, ef þá er einhvers staðar að finna, meira til heimabrúks og lítið í þá, hvað á maður að segja, ekki varið heldur halda þeir ekki vatni. Allir fyrirvarar sem eru gerðir þurfa að vera í samningum samþykktum af báðum aðilum að mínu áliti. Þar af leiðandi eru fyrirvararnir sem er verið að tala um ekki til að hrópa húrra fyrir. Enda erum við með mál á Alþingi, hið svokallaða hráakjötsmál, sem við erum með til úrvinnslu af illri nauðsyn vegna þess að við fengum dóm á okkur í því máli, Íslendingar, af því að það héldu engir fyrirvarar. Ætti það að vera okkur víti til varnaðar, að vanda okkur enn þá meira í þessu máli því að þótt hitt málið sé náttúrlega mjög stórt mál er þetta mál enn þá stærra. Ef stigið er djúpt út í þennan poll er erfitt að komast þurr upp úr honum aftur.