149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:33]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þetta hressilega andsvar. Þingmaðurinn er greinilega búinn að leita dyrum og dyngjum og ég treysti honum fullkomlega sem lærðum lögfræðingi til að meta þetta mál algjörlega rétt. Stjórnarliðar hafa, eins og þingmaðurinn orðaði það, hlaupið í felur og ekki komið með haldbærar skýringar á þeim fyrirvörum sem talað er um. Ég er honum algerlega sammála í því. Í ljósi sögunnar varðandi málið sem ég nefndi áðan hljótum við að óska eftir því að þetta verði stoppað og unnið miklu betur í málinu þannig að t.d. þessi atriði verði til lykta leidd. Best er náttúrlega að geta komist að samkomulagi um svona mál án þess að vera með fyrirvara. Orðið fyrirvari er í mínum huga frekar til tortryggni en annað.