ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir andsvarið. Hann kom inn á nokkur mál og nefndi fyrst sátt, að þetta þyrfti að vera í sátt. Ef eitthvað þarf að vera í sátt þá þarf þetta mál að vera í þjóðarsátt. Við erum að tala um grundvallarmál í auðlindamálum þjóðarinnar, sem orkan er.
Hv. þm. Birgir Þórarinsson hefur oft bent á það og veifað reikningum þar sem sést svart á hvítu að raforkuverð hækkaði á sínum tíma þegar orkupakki eitt og tvö voru innleiddir. Það segir okkur að ef við höldum áfram að innleiða eins og t.d. þennan pakka mun raforkuverð að öllum líkindum hækka. Alla vega þurfum við að taka mið af því sem segir í þessum samningum.
Um hvaða afleiðingar það getur haft þá hefur mikið verið talað um náttúruvernd í gegnum árin og ekki eigi að stuðla að auknum framkvæmdum í virkjunarmálum. Þetta hlýtur að koma mikið við náttúruverndarsjónarmiðin. Það hefur lítið verið rætt um loftslagsmálin í þessu sambandi. Getum við ekki betur mætt þeim loftslagsvanda sem að steðjar í heiminum, eins og mikið er rætt um í dag, ef við erum sjálfum okkur nóg og sjáum um okkar mál sjálf hér heima án þess að fara að tengjast öðrum þjóðum með raforkustreng? (Forseti hringir.) Það var nú frægt þegar þingmaður talaði um skítugt rafmagn fyrir nokkrum árum og (Forseti hringir.) var gert grín að því. En það (Forseti hringir.) var alveg laukrétt hjá viðkomandi.