ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við ræðum þetta mál án þess að það fáist fullnægjandi svör við fjöldamörgum spurningum. Við höfum náttúrlega talað um fyrirvara. Við höfum talað um samhengi við fjórða orkupakkann. Við höfum rætt þetta í samhengi við lærdóma frá Noregi, m.a. í ljósi væntanlegs dóms í september.
Eitt atriði sem hefur ekki mikið verið nefnt eru aðstæður sem gætu skapast í framtíðinni. Segjum að þegar fram er komin tækni sem getur með umhverfisvænum hætti virkjað sjávarföllin þá eru náttúrlega stórkostleg tækifæri hér. Það gæti vel verið að seinni kynslóðir myndu meta það svo að þær vildu að Ísland yrði raforkuframleiðandi og seldi raforku um rafstreng til útlanda.
Getur hv. þingmaður tekið undir það að umræðan er að þessu leyti ófullkomin? Til að mynda kemur þessi þáttur hvergi við sögu.