149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:42]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Það var einmitt orðið sem mig vantaði áðan, garðyrkja. Ég var að reyna að muna heildarheitið og mundi eftir grænmetisbændum en auðvitað átti það að vera garðyrkjan. Stundum virkar ekki allt þegar maður er komin í ræðustól.

Mig langar að nota tækifærið fyrst við erum að ræða orkumálin og spyrja hv. þingmann: Er það rétt hjá mér að Reykjanesbær hafi í gær afsalað sér forkaupsréttinum að innviðunum varðandi það sem snýr að þessu veitufyrirtæki? Nú blasir við að einkaaðilar munu eignast eða vilja eignast þá innviði.

Það er reyndar ein spurning enn sem mig langar að spyrja hv. þingmanninn. Réttilega var bent á hér að unnið væri að orkustefnu fyrir Ísland. Erum við ekki að byrja á röngum enda með því að innleiða orkustefnu Evrópusambandsins áður en við erum tilbúin með eigin orkustefnu? Hvort verður aðlagað hverju? Eru ekki líkur á því að við verðum að aðlaga hana að Evrópusambandsstefnunni?