ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrir prýðisgóða ræðu. Hún ræddi m.a. þær forsendur sem einstakir þingmenn, þingmannahópar eða þingflokkar virðast leggja til grundvallar við stuðning þessa máls. Þar kemur margt sérkennilegt í ljós. Við höfum tekið eftir því til að mynda að tilteknir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem vísað hefur verið til, hafa ritað greinar í Morgunblaðið og haldið fram verðlækkun án þess að rökstyðja það, neytendavernd án þess að rökstyðja það, jafnræði án þess einu sinni að skilgreina hvað í því felst eða hvaða ávinningur er að því. Við sjáum að þögn Vinstri grænna er hávær um náttúruverndarþáttinn í málinu. Við sjáum auðvitað líka að þeir tveir flokkar sem hafa fulla aðild að Evrópusambandinu sem stefnumál, Samfylkingin og Viðreisn, hreyfa náttúrlega engum andmælum hér og samþykktu málið óséð. (Forseti hringir.)
Kemur það hv. þingmanni á óvart að það skuli vera undirbúin leið og rutt úr vegi (Forseti hringir.) hindrunum fyrir fullri aðild að Evrópusambandinu af hálfu þeirra flokka sem mynda meiri hlutann (Forseti hringir.) á Alþingi?