149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:00]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mig langar aðeins til að kanna viðhorf hennar til þess sem mjög hefur borið á og það er að uppi virðist vera mikil viðleitni af hálfu sumra til að afflytja málflutning okkar Miðflokksmanna í þessari umræðu. Þeir hafa lagt sig fram um að gera lítið úr umræðunni. Þeir kalla þetta náttúrlega málþóf. Mín vegna má kalla þetta málþóf, að vísu fullnægir þetta málþóf ekki þeirri hugtaksskilgreiningu að vera innihaldslaus umræða vegna þess að hún hefur verið málefnaleg, hún hefur verið greinandi og margar nýjar hliðar hafa komið fram. En mér hefur fundist það afar sérkennilegt að því skuli vera linnulaust haldið fram af hálfu sumra, alls ekki allra, að þessi umræða feli í sér endurtekningar, einhver samsvör og eitthvað svona lítillækkandi orðalag um umræðu sem snertir þýðingarmikla þætti fyrir íslenska þjóð. Ég spyr: Hvernig stendur á því að þeir þingmenn geta (Forseti hringir.) ekki tekið þátt í þessari umræðu?