ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrir hennar ræðu. Ég hjó eftir því að hún talaði um skoðanakönnun sem reyndar hefur ekki verið birt opinberlega, en samt hefur kvisast út að helmingur þjóðarinnar sé á móti því að Alþingi samþykki að innleiða þriðja orkupakkann. Ef það reynist rétt, og þetta er einföld spurning, er það eitt og sér ekki næg rök til að stoppa málið og skoða það betur og þá í leiðinni, ef hlé verður tekið, að upplýsa þjóðina um hvað málið snýst svo að þjóðin sé upplýst um það sem við erum að tala um hér á þingi en trúi því bara eða trúi því ekki sem talað er um án þess að vera upplýst um málið?