ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Við erum að vinna að orkustefnu. Það er einn fulltrúi frá hverjum stjórnarflokki og með sérfræðingum er þetta 15 manna hópur. Þess vegna fannst mér mjög vont hér í umræðunni áður að hv. þingmaður gaf margoft í skyn að engin slík vinna væri í gangi eða að hún þyrfti að fara fram eða annað, vitandi að náskyldur ættingi viðkomandi hv. þingmanns er í nefndinni og er búinn að vera í heilt ár. Hv. þingmaður veit nákvæmlega hvert ég er að fara. Þess vegna finnst mér þetta vont. Það finnast mér vera rangfærslur í umræðu þegar hlutum er haldið fram með slíkum hætti.
Ég vil líka upplýsa hér rétt í lokin um fyrirvarana sem hefur margoft komið fram í þessari umræðu að menn hafi verið eltast við. Hv. þingmenn í atvinnuveganefnd ættu a.m.k. að vita að 17. maí sl. komu þeir fyrirvarar í skjölum í málum nr. 791 og 792. (Forseti hringir.) Það hefði því kannski getað komið fram fyrir kannski 100, 120 (Forseti hringir.) klukkustundum síðan í þessari umræðu.