149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:14]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Niðurstöður skoðanakönnunarinnar hafa ekki verið birtar. Ég hef reyndar fengið óljósar fréttir af því að hún hafi verið gerð og að niðurstaðan sé sú að þjóðin sé dálítið skipt í þessu máli. Við getum þá haldið því fram að fyrir 140 klukkustundum hafi 90% þjóðarinnar verið með orkupakka þrjú. En vegna þess að við hreyfðum við málum, lærðum af reynslunni, hvernig farið var með persónuverndarlöggjöfina á síðasta þingi, þá ákváðum við að skoða þetta mál betur. Þá voru ansi margir sem sendu inn umsagnir og voru á móti persónuverndarlöggjöfinni, bentu á sektarákvæði, bentu á íþyngjandi kostnað fyrir stofnanir og sveitarfélög. Á það var ekki hlustað. Við völdum að hlusta núna og þess vegna höfum við talað í 140 klukkustundir.