149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:15]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er athyglisvert að niðurstaða þessarar könnunar skuli ekki vera birt. Það skiptir máli að vita hvar þjóðin stendur í þessu stóra máli sem varðar hana til allrar framtíðar. En það kemur líka að öðru og það er mikilvægi þess að almenningur sé vel upplýstur um þetta mál. Þar hefur skort verulega á, að mínu mati, frú forseti, að stjórnvöld hafi kynnt þetta nægilega vel. Þarna eru ýmis álitaefni sem þarf að fá nánari útlistun á. En fyrst og fremst þarf að svara áleitnum spurningum um það t.d. hvaða áhrif þessi orkupakki hefur. Í ljósi þeirrar reynslu sem við höfum af orkupakka eitt og tvö er fullkomlega eðlilegt að þeir sem t.d. urðu (Forseti hringir.) fyrir mikilli hækkun á rafmagni til húshitunar fái að vita að ekki verði frekari hækkanir.