149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:40]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta andsvar og ég þakka honum fyrir að hafa verið við umræðuna í dag. Sá sem hér stendur er fylgjandi EES-samstarfinu. EES-samningurinn hefur reynst okkur vel þau ár sem hann hefur verið í gildi og hann hefur náttúrlega þróast. Orkan var ekki í honum fyrst og fleiri atriði voru ekki í honum fyrst og komu svo inn í viðaukum seinna, eins og kemur fram t.d. í ágætri umsögn Jóns Baldvins Hannibalssonar um þetta mál.

Ég treysti hins vegar á EES-samninginn og ég treysti samningnum öllum. Ég treysti því t.d. að ef ráð bestu manna væru tekin og þessum pakka hafnað og hann sendur á grundvelli 102. gr. EES-samningsins til sameiginlegu EES-nefndarinnar, þá trúi ég því að þar myndi hann fá lögformlega meðferð sem væri báðum aðilum hagfelld og að því loknu væri hægt að innleiða hann á Íslandi með lögformlegum fyrirvörum.

Hvað stjórnarskrána varðar finnst mér persónulega að sú stjórnarskrá sem við höfum hafi reynst okkur bara takk bærilega frá 1944.

Við höfum nýlegt dæmi frá Noregi þar sem stjórnarskrá er þar sem ákveðið valdframsal er skrifað inn, ef við getum orðað það þannig. Norðmenn innleiddu einmitt þennan orkupakka númer þrjú nýlega, en það eru málaferli út af því í Noregi vegna þess að menn segja: Við efumst um að þetta hafi staðist norsku stjórnarskrána þrátt fyrir framsalsákvæði sem í henni eru, sem okkur vantar eða eru ekki hér. Og þetta mál er einmitt að fara fyrir stjórnlagadómstól í Noregi 23. september næstkomandi og er m.a. ein af ástæðum þess að við sem höfum móast aðeins við höfum talið að það væri affarasælla að geyma þetta mál til haustsins.