149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:42]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ef ég skil hv. þingmann fyllilega rétt vill hann vera í EES-samstarfinu, halda áfram að vera þar. En vill hann heimila breytingu á stjórnarskránni þannig að við séum ekki með þessa óvissu eða vill hann halda stjórnarskránni eins og hún er hvað þetta varðar? Það er alveg ljóst sem fólk segir og hefur komið ítrekað fram að við erum að ganga lengra og lengra inn í þennan sameiginlega innri markað með alls konar áhrifum, þ.e. það verður að samræma, annars er ekki þessi innri markaður. Ef við ætlum að vera hluti af honum verðum við að samræma okkur við þá vöru og þjónustu sem verið er að flytja hér á milli. Eða telur þingmaðurinn að við getum bara klippt okkur algerlega út úr orkumálaþætti af því að orka er vara? Auðlindin sem býr til orkuna á Íslandi er enn þá undir yfirráðum Íslendinga. Aftur á móti, rafmagnið sem búið er til er hægt að flytja með sæstreng, ef hann kemur. Sama með fiskveiðiauðlindina, hún er á forræði Íslendinga en fiskinn sem er veiddur (Forseti hringir.) er hægt að selja innan sameiginlega markaðarins, sem er einmitt það sem sjávarútvegsfyrirtækin vilja alls ekki missa. (Forseti hringir.) Skilur þingmaðurinn þennan samanburð og (Forseti hringir.) hvar stendur hann varðandi það hvort breyta megi stjórnarskránni í meira valdframsal?

(Forseti (BHar): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)