149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:43]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka aftur fyrir fyrirspurnina. Mér fannst hv. þingmaður vera að lýsa, hvað á ég að segja, svona þvinguðu ferli. Af því að við erum þátttakendur í þessu samstarfi þá séum við nauðbeygð til að færa stjórnarskrána okkar að lögmálum Evrópu. Þar er ég ekki sammála. Ég tel reyndar eins og dæmið sem ég nefndi áðan frá Noregi þar sem þeir eru með framsalsheimildir, að það hafi alla vega ekki virkað fyrir þá. Því spyr ég: Hvað þurfum við að ganga langt til þess að við getum aðlagað okkar lög og lagabálka að þeim gerðum sem við fáum frá Evrópu? Málið er að menn hafa sagt það mjög lengi að við séum búin að þenja stjórnarskrána áður, t.d. með fjármálakaflanum á sínum tíma, sem mig minnir að ég hafi samþykkt og er svo sem ekkert sérstaklega stoltur af því. Þetta eru mál sem ég held að við þurfum að vera mjög varkár með. Við breytum ekki stjórnarskránni á hverjum degi. Við hugsum hana til langrar framtíðar, alveg eins og hún er búin að endast okkur núna. Ég vil því fara mjög varlega í þessum sökum.