149. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2019.

dagskrá fundarins.

[10:01]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég verð að segja, milt sagt, að það kom mér nokkuð á óvart í nótt þegar ég las dagskrá þingsins að sjá að henni hafði verið breytt og að orkupakkinn væri ekki fyrstur á dagskrá. Þetta er í rauninni þvert á það sem þingflokksformenn sögðu mér að þeir hefðu rætt um.

Ég geri mér grein fyrir að forseti hefur dagskrárvald hér en mér hefði þótt eðlilegast að kynna þetta þingflokksformönnum og jafnvel bara stoppa fund núna og ræða við þá. Forseti talaði í viðtali við Morgunblaðið í gær um að þingið sé búið að vera óvenjuvinnusamt, að ekki liggi fyrir samkomulag og það verði margir fundir og langir og langt fram eftir sumri. Það er í sjálfu sér allt í lagi. Hæstv. forseti hefði kannski mátt minnast á það að samkvæmt upphaflegri starfsáætlun ætti þingi að ljúka í dag og enn er ekki komin fram starfsáætlun þingsins. Hæstv. forseti verður að starfa öðruvísi en bara sem blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar.