149. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2019.

dagskrá fundarins.

[10:42]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Hefði forseti viljað keyra þingstörfin út í skurð hefði hann sennilega gert það einhvern veginn svona, (JÞÓ: Nákvæmlega.) af fullkomnu virðingarleysi gagnvart minni hlutanum, með því að valta yfir minni hlutann hér, með því að fara fram að eigin geðþótta með breytta dagskrá án nokkurrar umræðu við þingflokksformenn minni hlutans á þingi.

Auðvitað ber þetta merki þess að ríkisstjórnin er ekki tilbúin að ljúka þingstörfum af því að hún er einfaldlega ekki tilbúin með þau mikilvægu mál sem hún þarf að klára. Fjármálastefnan er enn órædd í fjárlaganefnd og minni hlutinn hefur ekki séð hið minnsta um áform ríkisstjórnarinnar hvað varðar breytingar á fjármálaáætlun.

Ég fæ að koma í síðari ræðu að ummælum hæstv. forseta um vinnubrögð sem þessi í tíð sinni í minni hluta. Hann virðist ekki hafa dregið mikinn lærdóm af þeirri gagnrýni sem (Forseti hringir.) hann færði þar fram.