rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Herra forseti. Það er skiljanlegt að þessi hugtakaruglingur sé til staðar, enda eru þetta tæknileg hugtök sem hafa ákveðna merkingu. Það þyrfti hreinlega að búa til orðabók sem útskýrir þetta allt saman. Ef ég reyni að brjóta þetta í sundur má segja að milliliður sé hver sá sem er milligönguaðili um fjarskipti. Hægt er að túlka það á tvo vegu. Aðili hefur milligöngu um rauntímafjarskipti eða fjarskipti milli tveggja aðila, og annar aðili geymir upplýsingar fyrir aðila A sem aðili B getur komið og sótt á hvaða tíma sem honum hentar eða eftir einhverju skipulagi.
Þjónustuveitandi er sá sem er í rauninni að veita þá þjónustu að vera milliliður fyrir fjarskipti. Þetta er sennilega auðvelt.
Þegar við tölum um einhvern sem geymir upplýsingar fyrir einhvern er það hýsingaraðili, en þegar við erum að tala um mun á hýsingaraðila og efnisveitu, sem er nýleg aðgreining, t.d. að tala um Spotify sem efnisveitu frekar en hýsingaraðila vegna þess að ég er í rauninni ekki að biðja Spotify um að geyma neitt fyrir mig heldur tekur Spotify saman fullt af gögnum og miðlar þeim áfram til sinna þjónustuþega. Þjónustuveitandi hýsir vissulega gögn en er ekki hýsingaraðili í skilningi Evróputilskipunar 2000/31/EB eða laga um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. Aftur á móti mun Spotify sem efnisveitan vera ábyrg undir komandi höfundaréttartilskipun 2019/790/ESB (Forseti hringir.) sem er annars eðlis. Það er verið að reyna að stía þessum hlutum í sundur vegna þess að eðlismunur er á þeim.