rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Herra forseti. Þetta er ótrúlega stór spurning og ekki auðvelt að reyna að aðgreina þetta. Það koma svo mörg efni til, t.d. er Facebook vissulega bæði efnisveita í þeim skilningi að þar er miðlað efni sem hefur verið tekið saman einhvers staðar, YouTube kannski líka, en er líka hýsingaraðili fyrir þá pósta og þær myndir sem við setjum inn. Auðvitað eru þetta líka milliliðir í fjarskiptum, þeir standa á milli og veita upplýsingar á milli fyrir hönd notenda sinna. Svo komum við að kerfum eins og Dropboxi þar sem Dropbox er vissulega hýsingaraðili en hýsir ekki fyrir almenna notkun yfirleitt. Svo eru náttúrlega til jaðartilfelli þar sem þeir eru að hýsa eitthvað sem er opið.
Hvernig gæti einhver aðili vitað af því að einhvers konar brot eigi sér stað í efni sem er geymt á Dropboxi nema opnað væri á það? Þá er komið inn á það sem er stóra málið í þessu. Hýsingaraðilar eru með takmarkaða ábyrgð, þ.e. þeir bera ekki ábyrgð á efninu sem er hýst hjá þeim að því gefnu að þrjú skilyrði séu uppfyllt. Ef þeir hafa upplýsingar um t.d. barnamisnotkunarefni bera þeir ábyrgð á því að fjarlægja það. Ef þeir fá dómsúrskurð á sig um að það eigi að fjarlægja efnið verða þeir að gera það og ef þeir hafa staðfestar upplýsingar um höfundaréttarbrot ber þeim að taka efnið niður.
Oft hefur verið talað um ólöglegt niðurhal. Það er ekki til, það er til ólögleg dreifing en ekki ólöglegt niðurhal. (Forseti hringir.) Er þá ólöglegt að geyma upplýsingar sem eru höfundaréttarvarðar inni á lokuðu Dropboxi? (Forseti hringir.) Ég veit það ekki. Þetta er flækjan og reyndar eru fleiri flækjur til.