rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Virðulegur forseti. Hér ræðum við höfundaréttarmál. Það vill svo til að sá sem hér stendur er í flokki sem heitir Píratar og það er í skásta falli nýyrði í íslenskri tungu. Þegar við stofnuðum flokkinn kunnum við ekki við að kalla okkur sjóræningjaflokkinn sem er bókstafleg þýðing á orðinu pirate úr ensku eða pirat úr sænsku þannig að við ákváðum að kalla okkur Píratapartíið á þeim tíma. En þótt við höldum stundum partí þótti okkur með tímanum skárra að kalla okkur Pírata. Ástæðan fyrir því að við köllum okkur Pírata er sú að á internetinu góða viðgengst hegðun sem er kölluð á íslensku höfundaréttarbrot. Það er það sem enska orðið piracy nær yfir. Við segjum ekki pírötun á íslensku, kannski ættum við að gera það, við segjum höfundaréttarbrot. Ástæðan fyrir því að við köllum flokkinn þessu nafni er sú að árið 2000 og eitthvað lítið, 2005 eða 2006, féll dómur í Svíþjóð þar sem nokkrir ungir herramenn hlutu fangelsisdóm fyrir stórfellt höfundaréttarbrot með rekstri síðunnar piratebay.se sem var beinlínis hönnuð til þess að fremja höfundaréttarbrot, til að auðvelda þau, opinberlega. Það var ekkert launungarmál. Við þetta brast stíflan í deilum eða hugmyndafræðilegum ágreiningi sem hafði verið til staðar frá upphafi prentvélarinnar og vissulega frá upphafi internetsins, þ.e. ágreiningi um það hvernig eigi að fara með höfundarétt.
Pírataflokkurinn tekur ekki undir höfundaréttarbrot og það er í stefnu flokksins að höfundar hafi rétt á því að njóta ávaxta sinnar vinnu. Höfum það alveg á hreinu, við erum ekki á móti höfundarétti. Hins vegar er höfundaréttur hugsaður í grundvallaratriðum sem réttindi út frá mörg hundruð ára gamalli hugmyndafræði sem byggir á prentvélinni og er einfaldlega ekki hugsaður í samræmi við upplýsingatæknibyltinguna. Þetta þýðir að þegar upplýsingatæknibyltingin átti sér stað á fyrstu hlutum þessarar aldar eða allra síðustu þeirra seinustu fór að koma betur og betur í ljós, ekki meðal þeirra sem voru að fremja höfundaréttarbrot heldur allra annarra líka, ákveðin mótsögn milli þess að hafa annars vegar frjálst flæði upplýsinga og nýta þar af leiðandi internetið hvað best og hins vegar að framfylgja höfundarétti eins og hann hafði verið hugsaður fram að þeim tíma. Á þeim tíma settu menn á heimasíðurnar sínar bláan borða sem átti að tákna tjáningarfrelsi. Menn sakna stundum gömlu heimasíðnanna með svarta bakgrunninum og rauðu stöfunum, sprengingum og öllu sem gat truflað notandann við að lesa það sem var á síðunni. Þar á meðal voru alls konar borðar og málstaðir. Ég sakna þess pínulítið.
Það sem fór að gerast var að fólk sem var ekki að fremja höfundaréttarbrot lenti í því að vera ýmist sakað um höfundaréttarbrot eða það voru settar tálmanir á notkun þess á internetinu vegna höfundaréttarbrota annarra eða það hafði ekki aðgang að upplýsingum vegna þess að á einhvern hátt var höfundaréttarbrot líka framið á því tiltekna svæði þar sem lögmætar og mikilvægar upplýsingar voru til staðar.
Nú er ég bara að dýfa tánni ofan í flækjustigið sem kemur upp þegar við setjum höfundarétt í klassískum skilningi í samband við frjálst flæði upplýsinga. Það er innri mótsögn þarna á milli sem er svolítið erfitt að komast yfir. Það er ekki ómögulegt en það er erfitt og það verður alltaf háð einhverjum gráum línum og mati á því hvaða hagsmunir og réttindi skipti meira máli. Það er alltaf erfitt. Tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífsins geta skarast, sér í lagi í lagakerfi eins og í Bandaríkjunum þar sem friðhelgi einkalífsins virkar á allt annan hátt en í evrópskum rétti og tjáningarfrelsið reyndar líka ef út í það er farið. Af þeirri ástæðu er ekkert skrýtið að þegar tækniframfarir eiga sér stað á ofboðslegum hraða, eins og gerðist á seinni hluta 20. aldar og á sér enn þá stað í dag, hafi aðilar á markaði, á þingi, í stjórnkerfinu og alls staðar hreinlega ekki tíma til þess að átta sig á hinu stóra samhengi hlutanna. Það er ekki við fólk að sakast, þetta eru bara ofboðslega hraðar breytingar sem tekur tíma að átta sig á og bregðast við á skynsamlegan hátt.
Nema hvað, það var lítill skilningur á eðli internetsins, það var lítill skilningur á afleiðingum frjáls flæðis upplýsinga og hvað það þýddi fyrir dýrategundina okkar á meðan það var gríðarlega mikill skilningur, alla vega meðal sérhæfðari lögfræðinga, á höfundarétti og mikilvægi þess að viðhalda honum og framfylgja. Það sem gerðist var að menn fóru fram með ofboðslega miklu offorsi gagnvart internetinu til að framfylgja höfundarétti og höfðu mikinn skilning á mikilvægi þess að vernda höfundarétt og framfylgja honum en lítinn skilning á afleiðingum gjörða stjórnmálamanna. Til urðu hræðilegar hugmyndir, eins og t.d. ein sem kom fram í útvarpsviðtali 1997 eða svo, hjá annars frábærri manneskju sem ég hef kynnst lauslega, sem stakk upp á því í fúlustu alvöru að til að bregðast við því að fólk væri að senda hljóðskrár með tónlist á milli sín væri internetið einfaldlega hlerað hjá fólki og ef það væru svokallaðar MP3-skrár væri bara skoðað hvað fólk væri að senda á milli og brugðist við eftir atvikum. Þetta var í alvöru tillaga. Mig langar til að undirstrika hversu galin þessi pæling er. Það var ekkert heimskur maður sem lagði þetta fram heldur málsmetandi og greind manneskja sem einfaldlega hafði áhyggjur af hagsmunum listamanna, eðlilegar og réttmætar áhyggjur af hagsmunum listamanna þótt ýktar væru reyndar. Tillagan var í alvörunni talað að hlera samskipti fólks til að framfylgja höfundarétti.
Það er þess virði að pæla aðeins í því. Árið 2000, minnir mig nákvæmlega, voru sett lög í Bandaríkjunum sem kölluð eru Digital Millennium Copyright Act sem ég ætla ekki að þýða á íslensku, ég held að það sé enginn tilgangur með því, skammstöfuð DMCA. Það er nákvæmlega sá lagabókstafur, með bandarískri laganákvæmni skulum við segja, sem hér er lagt til að verði afnuminn. Hann fól í sér að til þess að sporna við höfundaréttarbrotum væri mikilvægt að rétthafar gætu einfaldlega bent á vefsvæði og sagt: Þarna á sér stað höfundaréttarbrot og þá skyldi efni tekið niður. Enginn dómur, enginn kviðdómur, engin málaferli, engin rannsókn. Efnið skyldi einfaldlega tekið niður við það eitt að bent væri á það og sagt: Taka niður, takk.
Þetta voru eðlilega umdeild lög á sínum tíma meðal fólks sem var vant því að nota internetið og spilar inn í málstað bláa borðans sem ég nefndi áðan sem oft var birtur á heimasíðum fólks sem aðhylltist frelsi á internetinu. Skilningsleysi löggjafans, bæði í Bandaríkjunum og hér gagnvart málefninu, var næstum því algjört. Í gegnum tíðina hefur alltaf verið mikill þrýstingur á því að reyna að hafa stjórn á internetinu og sá þrýstingur hefur aðallega komið úr átt rétthafa. Það er áhugavert að velta því aðeins fyrir sér. Hvers vegna rétthafa? Hvers vegna ekki leyniþjónustu eða einkafyrirtækja sem vilja markaðssetja sig? Hvers vegna voru höfundaréttaröflin fyrirferðarmest í byrjun í baráttunni gegn frjálsu flæði upplýsinga á internetinu? Það er vert að spyrja. Ég er ekki með nákvæmt svar við því en það er áhugavert. Mér finnst það áhugavert.
Nú hefur tíðin breyst og núna eru það ekki höfundaréttarhafar sem eru hvað sýnilegastir nema kannski í málum eins og þessu. Byltingin á sér enn þá stað. Hraðinn er jafnvel meiri en hefur verið áður. Þá eru komnir aðrir aðilar sem vilja stjórna frjálsu flæði upplýsinga, þar á meðal leyniþjónustur og einkafyrirtæki. Þá þykir mér leiðinlegt að segja það en ég ætla að segja það á ensku: I told you so. Á íslensku: Ykkur var sagt það, ykkur var sagt að þetta myndi gerast. Með þessu ótrúlega frelsi sem internetið færði okkur koma að sjálfsögðu fram öfl sem vilja hamla því frelsi í þágu eigin valds. En á seinasta hluta síðustu aldar og fyrri hluta þessarar voru það fyrst og fremst rétthafar sem voru fremstir í flokki í þeim ásetningi. Það hefur breyst þó nokkuð mikið í gegnum tíðina. Ónákvæma ástæðan sem ég get nefnt fyrir því að rétthafar hafa verið í fararbroddi er sú að það var skilningsleysi á efninu, eins og ég nefndi áðan, skilningsleysi á eðli frjáls flæðis upplýsinga, ekki endilega bara skilningsleysi á tækninni sem internetið byggir á, líka það, en við þurfum ekki endilega að skilja tæknina á bak við bílinn til að setja umferðarlög. Við þurfum að skilja samfélagslegar afleiðingar þess að hafa bíla á götunum, þess að við séum með stór tæki sem margar manneskjur komast fyrir inni í sem fara á ógnarhraða og geta klesst á aðra manneskju eða veggi eða hvaðeina. Það er það sem við þurfum að skilja, við þurfum að skilja afleiðingar tækniframþróunar til að setja lög sem eru skynsamleg. Almennt hefur löggjafinn klúðrað því hér sem annars staðar með því að setja lög eins og þau sem hér er lagt til að verði afnumin.
Það er rétt líka að nefna það að löggjafinn hefur talið það róttæka hugmynd að efast um ágæti þess að framfylgja höfundarétti með hinum hefðbundnu leiðum og framfylgja hefðbundnum skilningi á höfundarétti. Það gleður mig að sjá að það viðhorf er að minnka. Þetta er ekki róttæk hugmynd nema þá í þeim skilningi að hún er nauðsynleg viðbrögð við því að hér urðu og eru að eiga sér stað mjög róttækar breytingar á mannlegu samfélagi. Þær endurspeglast í þeirri staðreynd að núna erum við með nær algjörlega frjálst flæði upplýsinga, miklu meiri tækifæri til að deila upplýsingum, til að sanka að okkur upplýsingum og deila þeim með öðrum. Það er gott. Þannig á það að vera. Það er lykilpunkturinn í því að endurhugsa það hvernig við framfylgjum höfundarétti og nákvæmar lagatæknilegar útfærslur þess.
Það er annað sem er alveg þess virði að velta fyrir sér þegar við ræðum um höfundarétt og það er að þetta er tegund af eignarrétti sem er afskaplega flókin lagalega. Ég hvet fólk til að rifja upp æsku sína. Þegar maður sér ungbarn t.d. slá foreldra í andlitið og foreldrið setur kannski upp svip eða segir: Skamm, eða eitthvað því um líkt, þegar barn gerir eitthvað á hlut annars, lemur annað barn eða stelur einhverju eða lýgur eða gerir eitthvað sem við erum búin að ákveða að sé samfélagslega rangt er lexían einföld og við munum hana öll. Berum það aðeins saman við höfundaréttarbrot sem er stjarnfræðilega flókið lagalegt fyrirbæri. Við getum ekki, höfum hreinlega ekki tímann í æsku til þess að öðlast einhvern innri skilning á því hvað höfundaréttur snýst um. Hvernig ætla menn t.d. að útskýra fyrir fimm eða sex ára barni sæmdarrétt eða önnur lagaleg hugtök í höfundarétti? Maður gerir það ekki, enda verða börn jafnan hissa þegar þau komast að því að það megi ekki einfaldlega afrita kvikmyndir og þar af leiðandi deila gæðunum með fleirum á kostnað einskis, að þeirra mati, vegna þess að þau sjá ekki skaðann af því. Þau sjá ekki hvernig viðskiptamódelið virkar sem gerði framleiðsluna mögulega til að byrja með eða sem margir vilja meina að hafi gert framleiðsluna mögulega til að byrja með. Það þýðir að við erum almennt ekki með mjög sterka tilfinningu gagnvart höfundaréttarbrotum á fullorðinsárum. Fólk sem pælir aðeins í þessu getur öðlast mjög sterka tilfinningu fyrir þeim en hún er hvergi nærri því jafn rótgróin og innbyggð og hún verður þegar barn er alið upp í því að ljúga ekki, stela ekki og meiða ekki. Þetta verður aldrei augljóst og sjálfsagt í uppeldi barna okkar og þar af leiðandi aldrei augljóst og sjálfsagt í almennri siðferðisvitund okkar hvað varðar dreifingu og miðlun upplýsinga og efnis.
Skýrasta dæmið um þetta er þegar maður fer á YouTube og sér einhverjar klippur úr kvikmynd eða kannski tónlistarmyndbandi eða einhverju slíku. Þeim er oft dreift af rétthöfum sjálfum vegna þess að, viti menn, það koma fram ný viðskiptamódel sem virka án þess að takmarka aðgengi annarra að upplýsingunum. Stundum eru það aðilar sem eru ekki rétthafar, þeir setja efnið á YouTube eða einhvers staðar annars staðar á internetið, á opinn miðil, og setja undir textann: Ég á ekki þetta efni. Ég segist ekki eiga þetta efni, þetta hefur eingöngu skemmtanagildi. Þetta er auðvitað yfirleitt sagt á ensku, a.m.k. á þeim hluta internetsins sem ég stunda mest. Mér finnst það endurspegla misskilninginn. Brotið er viðurkennt með afsökun og fólk lætur eins og það megi þetta með því einfaldlega að tilkynna að það eigi ekki efnið, sem er auðvitað dagsatt. Fólk áttar sig ekki einu sinni á því að það má ekki dreifa efninu vegna þess að skaðinn er ekki svo augljós. Ég myndi meira að segja segja að skaðinn verði minna augljós með tímanum vegna þess að viðskiptamódelin blómstra og verða fjölbreyttari. Nú er ég (Forseti hringir.) því miður búinn með tímann, virðulegi forseti, en óska þess að vera settur aftur á mælendaskrá.