149. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2019.

rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.

494. mál
[12:17]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er verið að kæra til að mynda Boris Johnson fyrir lygar um Brexit og mjög erfitt að hrekja að þar sé réttmæt ákæra. Ég hef horft upp á í dómi að kona sem stóð fyrir framan dómara sagðist hafa stoppað á rauðu ljósi og var með ljósmynd þar sem var kveikt á bremsuljósunum því til sönnunar en svo þegar myndbandið var spilað og sást hvernig hún keyrði yfir á rauðu ljósi hélt hún áfram að benda á myndina og segja: Nei, það kom bremsuljós þarna, þess vegna stoppaði ég. Bíllinn hafði samt augljóslega aldrei stoppað. Hún neitaði fyrir þetta alveg ítrekað þrátt fyrir að sjá fyrir framan sig hvað gerðist í raun og veru. Þetta held ég að séu aðstæðurnar sem við erum að glíma við, að þrátt fyrir augljós ósannindi komast þau einhvern veginn upp með að halda fram svona málflutningi (Forseti hringir.) í skjóli tjáningarfrelsis, ég veit samt ekki hvernig. (Forseti hringir.)

Þetta er allt of stuttur tími til að tala um svona flókið mál.