149. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2019.

rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.

494. mál
[12:20]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Mig langaði að koma hingað upp til að þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni fyrir ræðu hans og innlegg í þessa umræðu. Þetta voru mjög mikilvægir punktar sem hv. þingmaður kom inn á. Ég byrja bara á því sem hv. þingmaður nefnir með að vera með merki í barminum á kjörstað. Það vakti mikla athygli í umræðu um kosningarnar síðast að einn hv. þingmaður tók barn sitt með í kjörklefann sem vakti mjög mikla athygli og var hann jafnvel ásakaður um brot á kosningalöggjöfinni. Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvernig hann sjái fyrir sér að hægt sé að breyta íslensku kosningalöggjöfinni í þá átt að bregðast við svona umræðu eins og var (Forseti hringir.) í Bretlandi í tengslum við Brexit og við sjáum svo sem líka hér í dag í þessum þingsal með umræðu um þriðja orkupakkann.