149. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2019.

rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.

494. mál
[12:28]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég er alveg sammála því að það er margt sem mætti breyta í kosningalöggjöfinni og ekki bara það sem snýr að þessu en kosningalöggjöf er nokkuð sem stjórnmálamenn vilja alltaf vera með puttana í.

Þó að við setjum ekki ábyrgðina á brotinu á hendur hýsingaraðilum gætum við með einhverju móti færst nær því að sinna þeirri skyldu að veita t.d. upplýsingar í mjög skýrt afmörkuðum tilfellum, bæði til að það sé ekki of íþyngjandi en líka til að gæta meðalhófs og passa upp á persónuverndarhugsjónir og annað.

Hitt sem er líka ágætt og var nefnt áðan að einhverju leyti er verkefni á borð við FactStream sem ágætur kunningi minn, Bill Adair, rekur fyrir Duke-háskóla, þar sem er reynt að takast á við sannleiksgildi með því að nýta þekkinguna sem er til í samfélaginu. En við verðum auðvitað að styðja við svona verkefni.