rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Vandinn er alltaf sá, ég tala nú ekki um í okkar litla samfélagi, að það er ekkert vandamál að reka kosningabaráttu fyrir stjórnmálaflokk fyrir 5–10 milljónir í alþingiskosningum. Það er ekkert vandamál að komast að í fjölmiðlum. Kynning í gegnum samfélagsmiðla o.s.frv. gerir það að verkum að það er mjög auðvelt fyrir okkur að nálgast kjósendur. Vandamálið byrjar hins vegar ef leikreglurnar eru slíkar að einhverjir flokkar hafa svigrúm til að eyða tugum milljóna eða jafnvel enn hærri fjárhæðum. Ef við hækkum þröskuldinn sem slíkan til að eiga séns í að komast að fyrir umfangi annarra í kosningabaráttunni þrýstast allir flokkar upp á við.
Það er það sem við höfum séð gerast í Bandaríkjunum þar sem fjármagnið hefur einfaldlega yfirtekið kosningarnar, allt frá prófkjörum eða forvali og út í gegnum kosningabaráttuna sjálfa. Það er engin leið að taka þátt í kosningabaráttu (Forseti hringir.) þar í landi öðruvísi en að hafa fjöldann allan af mjög fjársterkum aðilum að baki sér. Það er ágætt að hafa alltaf í huga að atkvæðisrétturinn liggur hjá einstaklingunum en ekki fyrirtækjum eða hagsmunaaðilum. Það er kjarni lýðræðisins.