rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Virðulegur forseti. Það hefur alltaf verið fólk sem misnotar leikreglur samfélagsins og það verður alltaf. Nafnleysið var alltaf hægt að misnota og verður alltaf hægt að misnota. Það er bara spurning um hvers konar tæki og tól bætast í vopnabúr þeirra sem vilja misnota nafnleysið, eins mikilvægt og það er nefnilega líka. Við getum ekki afnumið gjörsamlega nafnleysismöguleikann. Það er tvímælalaust réttur enn þann dag í dag.
En að skilja hvernig hægt er að misnota það í síbreytilegu umhverfi er hluti af því sem við þurfum að taka inn í gagnrýna hugsun til að geta komið auga á það þegar verið er að misnota það. Ég held að fyrri stuðningsmenn nafnleysisins og hvernig það var notað myndu einfaldlega ekki skilja hvernig það er notað í dag því að almennt séð skiljum við það í rauninni ekki. Við erum enn að reyna að læra það og sumir kunna betur en aðrir. Skilningur á slíku miðlast hægar en lærdómurinn eða sem sagt hvernig á að misnota það. Um leið og allir eða flestir eru búnir að læra hvernig er hægt að misnota það virkar það ekki eins vel lengur og þá verður að finna nýjar aðferðir o.s.frv. Þetta er því stöðugt ákveðið vopnakapphlaup í misnotkun á þeim úrræðum og leikreglum sem eru til staðar og að kenna það þá í gagnrýninni hugsun að koma auga á þessa misnotkun.
Þetta er stöðug barátta (Forseti hringir.) og þess vegna á tvímælalaust að leggja mun meiri áherslu í síbreytilegu samfélagi og tæknilega séð á gagnrýna hugsun.