rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Virðulegi forseti. Ég ætla að halda örstutt áfram með umfjöllun um þetta mál, um breytingu á lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, takmarkaða ábyrgð hýsingaraðila. Frumvarpið felur í sér að breyta 14. gr. laga nr. 30/2002, um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. Í 14. gr. er skylda hýsingaraðila á gögnum og þjónustu að fjarlægja efni af ákveðnum ástæðum. Það er þess virði að líta aðeins yfir hvernig sönnunarbyrðinni er hagað.
Þar eru þrír töluliðir. Sá fyrsti er ef hýsingaraðili hefur fengið vitneskju um að sýslumaður hafi lagt lögbann við hýsingu gagnanna eða dómur hafi fallið um brottfellingu þeirra eða hindrun aðgangs að þeim, annar ef hýsingaraðili hefur fengið tilkynningu ef um meint brot gegn ákvæðum höfundalaga er að ræða og sá þriðji ef aðili hefur fengið vitneskju um gögn sem innihalda barnaklám.
Frumvarpið sem hér um ræðir fjarlægir ekki 2. tölulið, heldur breytir honum þannig að hýsingaraðilinn þarf að hafa beina vitneskju um að um sé að ræða ólöglega starfsemi eða upplýsingar að því er varðar skaðabótaábyrgð og að honum sé kunnugt um staðreyndir eða aðstæður svo að ljóst megi vera að um ólöglega starfsemi eða upplýsingar sé að ræða.
Þetta er allnokkur þrenging á því sem nú þegar er til staðar. Mér finnst þess virði að minnast á hvernig forgangsröðunin hefur verið í gegnum tíðina vegna þess að í 3. tölulið er um að ræða barnaklám og þar þarf vitneskju um það. Þar þarf hýsingaraðilinn að vita til þess að verið sé að hýsa barnaklám hjá sér. Og samkvæmt fyrri tölulið, þegar um er að ræða lögbann eða gögn sem dómur hefur ákveðið að skuli fjarlægja, þarf einnig að hafa vitneskju um það.
Í 2. tölulið í núgildandi lögum þarf ekki að hafa vitneskju um það. Það þarf bara að fá tilkynningu um meint brot, það þarf ekki að hafa vitneskju um að brotið hafi verið framið heldur bara að fá tilkynningu frá rétthafa um að meint brot hafi átt sér stað, eða ekki.
Slíkar kvaðir eiga ekki að vera svona. Þær eiga að vera þrengri, samanber þetta frumvarp, þar sem viðkomandi þarf að hafa vitneskjuna, sem er eðlileg krafa, jafnvel þegar um barnaklám er að ræða, hvað þá meint höfundaréttarbrot.
Svona kvaðir á hendur hýsingaraðilum eru í eðli sínu vafasamar, þær eru í eðli sínu pínulítið hættulegar. Við gætum þurft á þeim að halda og þær geta verið lögmætar og réttmætar, en þær hafa þann galla að þær geta mismunað verulega mögulegum þjónustuveitum. Sem dæmi er til vefsetur sem heitir Wikipedia og er mikið notað. Það byggist beinlínis á því að hver sem er getur sent inn gögn og sett upp einhverjar síður. Þar er einhvers konar sjálfsritstjórn í gangi, þ.e. þeir sem hafa meiri reynslu á vefnum sjá í raun og veru um ritstýringuna, en hver sem er getur breytt hvaða efni sem er eða næstum því hvaða efni sem er á Wikipediu með einstaka undantekningum þegar mál verða umdeild. Ég hugsa t.d. að greinin um Donald Trump hljóti að fá aðeins meiri ritstjórn en aðrar, enda ýmislegt sem fólk vill segja um þann mann sem er kannski ekki beinlínis staðreyndir en samt sem áður einlæg sannfæring margra.
Wikipedia var ekki alltaf stór og ekki alltaf vel fjármögnuð. Wikipedia var einu sinni bara lítið tilraunaverkefni. Sama má eflaust segja um YouTube, sem var ekki alltaf stórt. Facebook var ekki alltaf stór. Þetta byrjaði einhvers staðar sem lítil verkefni og það sem þessi vefir eiga sameiginlegt er að þeir stóla á velgengni sína í því að óbreyttir notendur úti í bæ geti sett inn efni. Þegar kvaðir eru settar á slík fyrirtæki um að vakta eða bera einhvern veginn ábyrgð á því efni sem er hýst hjá þeim, sem aftur getur verið þörf á, getur það dregið úr möguleikum lítilla aðila til að stækka mjög hratt og bjóða upp á þjónustu sem er byltingarkennd eins og Wikipedia var byltingarkennt vefsetur í dreifingu þekkingar. Ég óttast að ef rétthafaöflin hefðu fengið öllu sínu framgengt í lögum væri Wikipedia ekki til, ef slíkt hefði verið sett á fót á þeim tíma þar sem slík lög voru í gildi.
Þetta þurfum við alltaf að hafa í huga þegar við setjum lög. Þetta eru ekki tromprök sem slá öll önnur rök út af borðinu. Það er mikilvægt að hafa löggjöf um ýmsa dreifingu upplýsinga, en þetta er samt sem áður hlutur sem gleymist mjög gjarnan þegar við ræðum miðlun upplýsinga á internetinu, sér í lagi þegar um tilfinningaríka umræðu er að ræða.