rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Herra forseti. Mig langaði bara til að koma hér örstutt og nefna hætturnar í ljósi þess sem hv. þm. Helga Vala Helgadóttir reifaði hér áðan. Mig langar til að nefna hætturnar sem felast í því að útvíkka um of takmörkun á því ábyrgðarleysi sem hýsingaraðilar eiga að bera. Það er í dag takmörkuð ábyrgð fyrir hýsingaraðila vegna þess að skilningur er á því að það er mikilvægt að hýsingaraðilar séu ekki dregnir inn í mál sem þeir eru algjörlega hlutlausir gagnvart.
Það er ákveðin tilhneiging þegar fólk á við eitthvað sem er jafn flókið og internetið er og úr því að það er flókið að hafa hendur í hári þeirra sem bera raunverulega ábyrgð á hlutum, hvort sem um er að ræða hryðjuverkaógn, stafrænt kynferðisofbeldi eða hatursáróður, til að reyna að velta ábyrgðinni yfir á hýsingaraðilana vegna þess að það er auðvelt. Þetta er ákveðið form af því að skjóta sendiboðann. Ég ætla að taka það fram að þetta er ekki það sem hv. þm. Helga Vala Helgadóttir var að leggja til en ég fór að hugsa um þetta í ljósi orða hennar um stafrænt kynferðisofbeldi í breiðari skilningi og mig langaði bara til að árétta þetta. Í réttarkerfinu almennt gerum við greinarmun á þeim sem fremur verknað og þeim sem á mjög óbeint hlut að máli. Þó að morð sé framið í leiguhúsnæði ber leigusalinn ekki ábyrgð. Þó að bíll sem er fenginn að láni sé notaður til þess að flýja í eftir bankarán ber eigandi bílsins ekki ábyrgð. Það er alltaf sá sem fremur verknaðinn sem ber ábyrgð.
Það er alveg ljóst að á netinu er tilhneiging til að geta falið slóð sína og það er beinlínis eftirsóknarvert í mörgum tilfellum að fólk geti falið slóð sína. Internetið hefur einmitt, vegna þess hve auðvelt það er, orðið öflugt tæki fyrir mannréttindabaráttu fólks, fyrir andstæðinga fasísks stjórnarfars eða álíka til að rísa upp til varnar lýðræðislegum réttindum og hugsjónum. Það fylgir því að það er stundum erfitt að hafa hendur í hári réttra aðila þegar lög eru brotin. Við erum ekki sem samfélag búin að finna út hvar jafnvægið á að vera. Auk þess er það ákveðið vandamál að dulmálsfræðum er alveg sama um pólitík. Dulmálsfræði eru bara stærðfræðilegar aðferðir við að fela upplýsingar og það er ekki hægt að segja með pólitískri ákvörðun að dulmálsfræði eigi að virka nema þegar dómur sker úr um annað. Það gengur ekki þannig. Stærðfræðin er ekki mikið að beygja sig fyrir ákvörðunum dómstóla.
Einhvers staðar annars staðar þurfum við að draga þessa línu. Ég veit ekki nákvæmlega hvar á að gera það en þangað til við höfum dýpri skilning á því held ég að við ættum í öllu falli að forðast freistinguna til að velta ábyrgðinni yfir á þá aðila sem þó er hægt að koma böndum yfir, bara vegna þess að það er auðvelt. Það leiðir ekki af sér góð lög, ég held að það væru ólög að setja ábyrgðina þangað.