rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Herra forseti. Mig langar að byrja á því að taka undir með hv. þingmanni varðandi það hversu mikilvægt það er að við sinnum þessu vel. Það er þannig að tæknin gefur og tæknin tekur aftur. Eitt af því sem tæknin hefur tekið af okkur í málum sem þessum er getan til að vera algjörlega viss um hvernig á að haga hlutum. Þetta var vissulega einfaldara áður en fyrirbærið hýsingaraðili varð til. Ástæðan fyrir því að ég yrði ekki neitt rosalega fljótur að útvíkka þetta og fjarlægja efni sem varðar við lög með þeim hætti sem er lagt til í frumvarpinu er sú að í því felst að vissu leyti að fjarlægja sönnunargögnin um leið og efni er tekið úr birtingu. Það er mögulega hægt að raða því og koma því fyrir með ýmsum hætti en eitt af því sem hefur verið gagnrýnt varðandi barnaklámsákvæði tilskipunarinnar 2000/31/EB er að það er skylda að fjarlægja slíkt efni en ekki er lögð sérstök áhersla á það af hálfu hýsingaraðila að tilkynna um að slíkt efni hafi fundist þó að vissulega eigi þeir að gera það samkvæmt öðrum lögum. Þarna kemur upp atriði þar sem mismunandi hagsmunir rekast saman og ég held því að það sé betra fyrir framkvæmdina að við göngum þá aðeins hægar. Vissulega þarf að vinna hratt í ákveðnum tilfellum en þetta jafnvægi skiptir máli.