rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og tek undir með honum þegar hann segir að þetta hafi vissulega verið einfaldara áður en orðið hýsingaraðili varð til. Þetta var auðvitað allt mun einfaldara áður en við fundum upp internetið og mögulega var þetta allt einfaldara áður en mannfólkið fór að tala saman og taka upp á ýmsu.
Ég er mjög fegin að internetið varð til og ég er líka mjög fegin að það eru til hýsingaraðilar og við þurfum að búa til einhvers konar leikreglur fyrir þetta allt saman. Ég tek undir það að einhverju leyti að fara sér hægt og finna ákveðið jafnvægi en við erum að vinna þetta núna og við erum búin að ræða t.d. stafræna kynferðisofbeldið, þó að það sé auðvitað ekki það eina. Við erum líka að tala um gögn er varða þjóðaröryggi, sem eru ekki síður mikilvæg. Hvað gerist ef hýsingaraðila er bent á að hann hýsi gögn sem eru beinlínis ógn við þjóðaröryggi? Hann segir bara: Ég veit ekkert hver á þetta og ég treysti mér ekki til að taka það út. Mér finnst ég ekki geta það.
Hvar erum við þá stödd? Ég held að við ættum alveg að þora að taka skref og setja slíka skyldu á hýsingaraðila en um leið auðvitað þá skyldu að tilkynna stjórnvöldum að verið sé að fjarlægja efni eins og barnaklám og annað.