rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Herra forseti. Varðandi þjóðaröryggismálin höfum við náttúrlega dæmi um að hýsingaraðili í ákveðnum skilningi orðsins hafi birt upplýsingar og vissulega var vitað hvaðan þær komu. Það má t.d. nefna svokölluð Pentagon-skjöl á sínum tíma. Það mætti líka tala um Afganistan og Írak og stríðsskjölin sem ég hef því miður töluverða þekkingu á. Það er mjög alvarlegt hversu mikið af stríðsglæpum var verið að fela, þjóðaröryggi var notað sem tylliástæða fyrir því að fela stríðsglæpi í öllum þeim tilfellum. Við verðum að passa okkur á því.
En hvað varðar þetta frumvarp, svo að það komi skýrt fram, takmarkar það ekki getu eða málshraða í þeim tilfellum þar sem eigandi eða rétthafi efnis tilkynnir um höfundaréttarbrot heldur tryggir — það er náttúrulega erfitt að tryggja það en alla vega er verið að draga úr möguleikum á því að þriðji aðili tilkynni eitthvað sem höfundaréttarbrot sem er það ekki.
Það er samhljómur milli þessara tveggja dæma þar sem ríki segja mál varða þjóðaröryggi sem gera það ekki og þegar einhverjir aðilar nota þetta til að ritskoða á grundvelli höfundaréttarbrota, það er náttúrlega keimlíkt. Í öllum tilfellum snýst þetta um að ná jafnvægi þar sem við fjarlægjum ekki það sem ætti ekki að fjarlægja en fjarlægjum það sem þarf að fjarlægja. (Forseti hringir.) Svo er auðvitað matskennt og erfitt að leysa úr því.