rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Virðulegi forseti. Mér þykir hv. þingmaður tala um tjáningarfrelsi á mjög íslenskan mælikvarða. Því miður er það ekki hrós vegna þess að Íslendingar eru ekki og hafa aldrei verið neitt sérstaklega hlynntir tjáningarfrelsi. Þeim finnst hugmyndin bara frekar róttæk og brjáluð og eru logandi hræddir við hana. Af þessum ástæðum ímynda þeir sér oft — og mér finnst það birtast í ræðu hv. þingmanns sem var að öðru leyti ágæt — að tjáningarfrelsið sé eiginlega það sem standi eftir þegar búið er að banna allt sem fólki er mögulega illa við eða getur komið einhverjum illa.
Guðlast var bannað á Íslandi til 2015, ofbeldiskvikmyndir svokallaðar voru bannaðar til 2003 eða 2006, ég man ekki hvort, og klám er enn bannað á Íslandi samkvæmt almennum hegningarlögum sem mér vitanlega er einsdæmi meðal frjálslyndra lýðræðisríkja og hneisa samkvæmt því. Það er svo sem önnur saga.
Mig langar aðeins að ræða við hv. þingmann um hatursáróður. Ég get tekið undir að það þarf að vera hatursorðræðulöggjöf en sú sem gildir núna er allt of óskýr og hún bítur allt of mikið. Þrír hæstaréttardómar hafa fallið tiltölulega nýlega um nýjustu útgáfuna af hatursorðræðulöggjöfinni hver öðrum fáránlegri, einn þeirra var sýknudómur og í hinum tveim var sakfellt. Mér er algjör ráðgáta hvað stjórnaði því hver var sekur og hver var sýknaður og hef samt skoðað málið þó nokkuð vel og rökstuðning Hæstaréttar.
Ég vil leggja það til við hv. þingmann að hatursorðræðulöggjöf þurfi að vera þannig úr garði gerð að hún taki á brotum á tilteknum skýrt skilgreindum réttindum fólks. Fólk hefur ekki rétt á því að ekki séu sagðir ljótir hlutir um það, fólk bara hefur ekki þann rétt. Það hefur rétt á öryggi. Það má ekki hóta fólki eða segja eitthvað sem stefnir öryggi fólks í voða, það þarf að vernda friðhelgi fólks og tryggja réttarvernd og því um líkt. Þessi lína sem alltaf er talað um við þessa umræðu er ekki til. Ég vildi bara henda þessari skoðun fram vegna ræðu hv. þingmanns. Mér finnst þetta ekki tímapunkturinn til að kalla eftir meiri þrengingum að tjáningarfrelsi á Íslandi. Það er bölvanlega lítið og til skammar.