rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Virðulegur forseti. Tjáningarfrelsið er ekki mikið á Íslandi. Eins og ég segi er það það sem situr eftir þegar Íslendingar hafa komið sér saman um hvað þurfi að banna með einstaka undantekningum. Það kom mér virkilega á óvart að Alþingi skyldi samþykkja að afnema guðlastsbannið árið 2015 en blessunarlega gerðum við það. Það voru reyndar tveir þingmenn sem sátu hjá, eins ótrúlegt og það er nú, úr Sjálfstæðisflokki og þáverandi Framsóknarflokki en núverandi Miðflokki.
Ég er alveg jafn mikið á móti hatri og hv. þingmaður. Ég er alveg jafn mikið á móti þessari orðræðu. Þegar hatursorðræðulöggjöf eins og hún er hérna er beitt styrkir hún hatur og eflir til muna hatursöflin. Ég ætla að benda á eina áróðursmaskínu sem heitir Útvarp Saga. Þaðan kemur flóð á hverjum degi af rangfærslum og staðreyndavillum. Ég hef alla vega einu sinni hringt inn til að leiðrétta staðreyndavillu sem var svo kynnt sem það að leggja samfélagið í rúst. Það var sú staðreynd að utanríkismálanefnd ætlaði að funda um þriðja orkupakkann, það var allt ógurlega samsærið, og senda hann til umsagnar. Ég gæti talað allt of lengi um rangfærslurnar og bullið sem þaðan vellur. Rangfærslurnar valda hatrinu, þ.e. þegar hlutir eru sagðir eins og það að hælisleitendur hafi það miklu betra en eldra fólk á Íslandi. Það er ekki það að fólk noti n-orð eða einhver ljót orð eða eitthvað sem lætur fólki líða illa með sjálft sig, það er ekki það sem veldur ofbeldinu. Það sem veldur ofbeldinu og hatrinu er þegar rangfærslum og fáfræði er pumpað inn í samfélagið.
Það er ekki hægt að banna það. Það er ekki hægt að banna fólki að hafa kolrangt fyrir sér. Það er ekki hægt að banna fólki að vera vitlaust. Það er vandinn. Þess vegna finnst mér þessi hatursorðræðulöggjafarnálgun missa af öllum forsendum hatursins þótt hatursorðræðulöggjöf þurfi að vera til staðar til að vernda beinlínis öryggi fólks. Mér finnst byrjað á kolröngum enda. Ef við ætlum að stemma stigu við hatri þurfum við hv. þingmaður að mótmæla og taka þátt í orðræðunni sem hvetur til haturs og leiðrétta hlutina aftur og aftur. Þannig vinnum við gegn hatri, ekki með því að refsa fólki. Það eflir fólk. Eitt af slagorðum Útvarps Sögu er: Verndum tjáningarfrelsið. Af hverju látum við þetta fólk fá þennan góða málstað, af hverju færum við þetta á silfurfati upp í hendurnar á því? Ég er á móti því, virðulegi forseti.