149. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2019.

rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.

494. mál
[14:10]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið en verð þó að vera örlítið ósammála eins og stundum er. Ég held að það sé ekki bara bullið sem veltur upp úr fólki sem kyndir undir hatri, ég held að það séu líka orðin sem notuð eru. Ég held að það sé líka það þegar ákveðinn þjóðfélagshópur er sagður vera barnaníðingar, að heill þjóðfélagshópur sé tekinn fyrir og sakaður um svívirðilega glæpi, af því að það er í raun hegningarlagabrot per se að fara fram með rangar sakargiftir.

Maður sér á ummælakerfinu í fjölmiðlum og jafnvel í stöðufærslum broddborgara að verið er að saka fólk um svívirðilega glæpi, heilu þjóðfélagshópana, minnihlutahópa. Ég hef séð þetta um fólk sem aðhyllist ákveðin trúarbrögð. Ég hef séð þetta sagt um hinsegin fólk. Ég hef séð alls konar svona hluti. Það er eiginlega alveg rosalegt. Þegar maður horfir á þetta og les þetta — og hv. þingmaður sem sjálfur talar um að tjáningarfrelsinu séu mikil takmörk sett, talar um óhróður sem vellur upp úr fólki á ákveðinni útvarpsstöð — átta ég mig ekki alveg á af hverju hv. þingmaður lítur svo á að tjáningarfrelsi þeirra einstaklinga séu einhver takmörk sett af því að svo er ekki. Þessu er beinlínis útvarpað allan liðlangan daginn, á hverjum einasta degi allt árið um kring. Hvaða takmörk eru á því tjáningarfrelsi? Það eru ekki takmörk þar og heldur ekki á kommentakerfinu. (HHG: Það er gott.) Af því að hv. þingmaður kom hingað og fór mikinn um það að sú sem hér stendur færi vill vegar af því að það væri ofboðslega mikil skerðing á tjáningarfrelsinu á Íslandi segi ég aftur: Ég er ósammála hv. þingmanni.