rafræn auðkenning og traustþjónusta fyrir rafræn viðskipti.
Herra forseti. Ég get svarað því frekar fljótt. Nei, við höfum kannski ekki tekið fyrir nákvæmlega þessa spurningu um rafræn viðskipti. Auðvitað er þetta spurning sem ætti alveg upp á pallborðið hjá framtíðarnefnd og er kannski bara spurning um forgangsröðun og annað í nefndinni. Við erum núna að klára að vinna stutta skýrslu um stóru línurnar í því hvernig við sjáum hluti vera að breytast á komandi áratugum. Það er mjög spennandi og ég hlakka til að sjá hana birtast. En kjarni málsins er að þegar við erum að tala um hluti sem þessa, rafræn viðskipti og annað, þróast þetta í fyrsta lagi það hratt að mjög erfitt er að spá fyrir um þetta með nokkurri vissu meira en fimm, sex ár fram í tímann og jafnvel það er frekar erfitt.
Hitt er það að undirliggjandi fræði, sem eru bara nútímadulmálsfræði, eru að breytast afskaplega hægt. Nútímadulmálsfræði byggist í rauninni á þremur grunnkenningum, sem sagt RSA-tilgátunni, þ.e. hugmyndinni um að erfitt sé að þátta tölur niður í frumþætti sína. Það er hinn svokallaði strjáli lógaritmi, sem er mjög erfitt að vinna aftur á bak, og svo eru elektrískar kúrfur. Þetta þrennt er nútímadulmálsfræði í mjög stuttu máli og ekki er auðséð hvert er næsta skref í því annað en kannski skammtadulmálsfræði. Því meira sem viðskipti verða rafræn, því erfiðara er að aðgreina rafræn viðskipti frá dulmálsfræði og fyrir vikið er kannski lítið að fjalla um á þessum tímapunkti nema kannski neytendahliðina.