149. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2019.

virðisaukaskattur.

52. mál
[15:01]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Smá í viðbót. Virðisaukaskattur á Íslandi er mjög hár og er mjög erfiður skattur fyrir fólk í tekjulægri hópum. Nú er verið að afnema eða lækka skatt um meira en helming en þegar skattalækkanir verða skila þær sér oft ekki mjög vel í verð að lokum. Það er einhvers konar þumalputtaregla að skattahækkanir skila sér beint út í verð, skattalækkanir ekki svo auðveldlega. Mig langaði því til þess að hvetja neytendur til að fylgjast svolítið með verðinu, skoða hvernig það er og hvernig það breytist og öðrum samtökum sem fylgjast með verði, sérstaklega á þessum vörum, að vera mjög vel vakandi og sjá hvort þessi breyting skilar sér alla leið þangað sem hún á að skila sér og að ekki sé verið að taka einhvers konar milliliðagjöld þarna aukalega sem er alls ekki ætlunin með þessu.

Á svo einföldum nótum þakka ég kærlega fyrir þetta frumvarp.