virðisaukaskattur.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og kem upp í andsvar þó að það sé kannski ekki alvanalegt að maður fari í andsvar við samflokksmann. Þar sem hv. þingmaður er hagfræðimenntaður og þekkir tilgang skatta betur en margur hér í þessum sal langar mig að spyrja hann hvort við gætum mögulega gengið lengra í mismunandi skattheimtu. Í Bretlandi eru t.d. allar vörur sem henta börnum, allar barnavörur, undanþegnar virðisaukaskatti. Auðvitað kemur það barnafjölskyldum vel. Ég velti fyrir mér hvort það sé eitthvað sem við gætum kannski séð sem næsta skref í sanngjarnri skattheimtu.
Þegar talað er fyrir svona þjóðþrifaverkum eins og lækkun virðisaukaskatts á þeim tilteknu vörum sem hér er fjallað um í dag heyrir maður oft þær gagnrýnisraddir að þetta flæki svo ofboðslega skattkerfið, það sé svo mikill veikleiki og til mikils ama. Á tölvuöld veltir maður því fyrir sér, og mér þætti vænt um að heyra hv. þingmann svara því, hvort það sé svo. Er þetta það mikið vandamál? Er þetta óyfirstíganlegt flækjustig sem við erum að búa til með því að lækka virðisaukaskatt á þessum vörum en ekki öðrum?