áætlun fyrir árin 2019--2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess.
Herra forseti. Mig langar að byrja á að þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir aldeilis góða og ítarlega ræðu, þ.e. framsögu. Ég verð að segja að þetta er líklega eitt ítarlegasta og flottasta nefndarálit sem ég hef séð á mínum tíma í þinginu, sem er reyndar ekki sérstaklega langur. En samt sem áður vel gert, hrós til allsherjar- og menntamálanefndar fyrir það.
Mig langaði þó ekki einungis til að koma hingað upp til að hrósa nefndinni heldur einnig til að spyrja út í nokkur atriði. Sem landsbyggðarþingmaður, svo ég noti það orð, sem er samt kannski ekki alveg rétt því að auðvitað erum við þingmenn allra landsmanna, langar mig að spyrja út í aðgerð C.3, stuðning við þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi. Mig langar að forvitnast og spyrjast fyrir um umræðuna í nefndinni. Að þjónustumiðstöð fyrir þolendur á Akureyri, sem staðsett er á Akureyri á Norðurlandi, standa lögreglan, sjúkrahúsið og Aflið sem hefur unnið gríðarlega mikilvægt starf en er bara á árssamningi. Það stendur alltaf til að gera lengri samninga við Aflið. Það er auðvitað frábært að þjónustumiðstöðin komist á hina beinu braut en kom ekki til tals að setja Aflið inn líka og reyna einhvern veginn að tryggja tilveru þess betur (Forseti hringir.) í áætluninni?