149. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2019.

vandaðir starfshættir í vísindum.

779. mál
[21:57]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Andrés Ingi Jónsson) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um vandaða starfshætti í vísindum. Þetta frumvarp snýst um það að sett verði á fót miðlæg nefnd sem verði til ráðgjafar, stuðli að fræðslu og fjalli um mál, hvort sem þeim er vísað til hennar eða þau tekin upp að eigin frumkvæði. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að innan vísindasamfélagsins væri litið á þetta sem framfaramál sem auka myndi trúverðugleika íslensks vísindasamfélags innan lands sem utan. Það má segja að mjög sé kallað eftir þessu máli þar, þar sem það að geta sýnt fram á að rannsóknir standist siðferðisleg viðmið og uppfylli viðmið um vandaða starfshætti í vísindum sé hluti þess sem ætlast er til þegar kemur að þátttöku í ýmsum alþjóðlegum verkefnum eða birtingu í ritrýndum tímaritum á alþjóðavísu. Með þessu yrði tryggt að viðmið hér á landi væru í samræmi við þau viðmið sem hið alþjóðlega vísindasamfélag setur sér sjálft.

Nefndin fjallaði um málið og heyrði ýmis sjónarmið varðandi það hvernig hægt væri að stilla þessa miðlægu nefnd af á ólíkan hátt, hvað varðar samsetningu hennar. Til dæmis var rætt hvort smæð íslensks vísindasamfélags kallaði á að erlendir sérfræðingar ættu sæti í nefndinni. Þá var rætt hvar þessi nefnd væri best staðsett í stjórnkerfinu til að tryggja góða starfsaðstöðu en líka ákveðið óhæði og fjarlægð frá þeim sem um er fjallað.

Allsherjar- og menntamálanefnd leggur hins vegar ekki til neinar breytingar í þessa veru að svo stöddu.

Alþjóðlegt vísindaumhverfi er í stöðugri þróun og það sama á við um þau viðmið sem gilda um vandaða starfshætti líkt og aðra þætti vísindastarfs. Við teljum að umgjörð og umboð nefndar um vandaða starfshætti í vísindum þurfi því eðli máls samkvæmt að taka reglulega til endurskoðunar svo að tryggt sé að umgjörð rannsókna og fræðistarfa hér á landi sé ávallt eins og best gerist.

Við gerum ekki tillögu að lagaákvæði um endurskoðun laganna að tilteknum tíma liðnum, en beinum því hins vegar til ráðuneytisins að taka út þá reynslu sem kemst á framkvæmd laganna að nokkrum árum liðnum og leggja eftir atvikum til breytingar að þeirri úttekt lokinni.

Í nefndaráliti geri ég grein fyrir nokkrum breytingartillögum sem eru mestanpart til þess að auka á skýrleika lagatextans.

Það sem kemst kannski næst því að vera efnisbreyting er sú breyting sem við leggjum til á 11. gr. laga til að tryggja að lagaskil séu skýr varðandi það hvaða rannsóknir heyri undir lögin.

Að þessu áliti stendur allsherjar- og menntamálanefnd í heild sinni, þ.e. auk þess sem hér stendur Páll Magnússon, formaður nefndarinnar, Anna Kolbrún Árnadóttir, Álfheiður Ingadóttir, Birgir Ármannsson, Guðmundur Andri Thorsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jón Steindór Valdimarsson og Líneik Anna Sævarsdóttir.