vandaðir starfshættir í vísindum.
Virðulegi forseti. Þetta er ekki alveg nógu langt hjá mér til að fara í ræðu, þetta er almenn athugasemd um siðanefndir í vísindum sem er búið að setja víða, og nú þessi yfirsiðanefnd. Það eru ákveðnar athugasemdir sem maður heyrir úr vísindasamfélaginu, aukin stjórnsýsla, bjúrókrasía, gríðarlega mikil aukin skriffinnska sem hamlar ákveðinni framþróun í rannsóknum. Þetta eru almennar áhyggjur sem ég hef af stofnun þessara fyrirbæra, eins nauðsynleg og þau tvímælalaust eru. Það er nauðsynlegt að huga einmitt að því sem er hægt að gera í framkvæmdinni án þess að breyta miklu í uppsetningunni á þessu. Það væri rosalega mikilvægt að huga að skilvirkni, möguleikum í samskiptum þessara siðanefnda við rannsóknafólk yfirleitt. Það sem rannsóknafólk er best í að gera er að stunda rannsóknir, ekki að vera í skriffinnsku og útskýringum fram og til baka sem snúa ekki endilega að rannsóknunum.
Að sjálfsögðu þurfa rannsakendur að útskýra aðferðafræði sína o.s.frv. En að mjög miklu leyti snúast siðanefndir um það hvort verið er að stunda rannsóknir á ákveðnum sviðum, rannsóknir á börnum eða föngum eða ýmsu svoleiðis, sem á ekkert við í langflestum tilvikum. Þá væri rosalega hentugt að geta sagt bara: Nei. Á ekki við. Þá er skriffinnskan búin. Það væri rosalega hentugt ef eitthvað svoleiðis væri til. Þetta er almenn athugasemd um þessi fyrirbæri sem hafa verið að myndast í íslenskum lögum að undanförnu.