149. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2019.

vandaðir starfshættir í vísindum.

779. mál
[22:04]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Andrés Ingi Jónsson) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Ég er ekki viss um að þessi þróun sem þingmaðurinn lýsir sé endilega bara spurning um íslensk lög heldur miklu frekar alþjóðlegt vísindaumhverfi. Við fengum t.d. sögur af því að til vísindasiðanefndar, sem á að fjalla um rannsóknir á heilbrigðisvísindasviði, leituðu rannsakendur stundum með mál sem eru ótengd verksviði þeirrar nefndar vegna þess að erlendir samstarfsaðilar kölluðu eftir því að það væri búið að tékka í þetta box.

Staðreyndin er sú að okkur vantar einhverja yfirsiðanefnd vísindamála, sem væri hægt að segja að þessi nefnd uppfyllti, til þess að rannsakendur geti, í staðinn fyrir að fara einhverja fjallabaksleið til óskyldrar nefndar, fengið sem einfaldasta staðfestingu á því að þeir séu að uppfylla helstu siðferðisviðmið í rannsóknum sínum til að geta uppfyllt kröfur erlendra samstarfsaðila. Þó að vísindamenn vilji ekki týnast í skrifræði þegar kemur að umgjörð rannsókna er það samt líka úr þeim geira sem er kallað eftir því að við bætum þessum skrifræðismöguleika við til þess að þeir geti skilað skýrslum þangað sem kallað er eftir þeim.