vandaðir starfshættir í vísindum.
Virðulegur forseti. Ég var einmitt í háskóla þar sem var svona IRB, „internal review board“, siðanefnd. Krafan var í raun bara um hana á heilbrigðissviði en skólinn ákvað að vísindasiðanefndin ætti við öll svið skólans, t.d. tölvunarfræðina. Það var bara ákvörðun hans og ekkert að henni sem slíkri.
Það sem ég á við hins vegar er að aðstaðan og aðstoðin kannski fyrir rannsakendur, sem eru góðir í að gera rannsóknir, til að skila þessu skriffinnskuveseni er oft ekki til staðar, samhæfing, samskiptamáti. Þó að það séu ákveðnar undanþágur fyrir nemendarannsóknir á þetta samt líka við nemendarannsóknir, sérstaklega þegar þær eru vegna barna. Í einni rannsókn sem ég veit um tók þetta það langan tíma að rannsókninni var sjálfhætt, nemendarannsókninni var sjálfhætt, sem fólst í viðtölum við 4. bekk í grunnskóla. Það þurfti að fara í gegnum ekki bara vísindasiðanefnd, það þurfti að fara í gegnum menntanefnd sveitarfélagsins sem tók líka tíma og önnin var næstum því búin án þess að rannsakandinn hefði getað safnað gögnum.
Það er gríðarlega alvarlegt ef ferlið hindrar rannsóknir og nemendarannsóknir á þennan hátt. Núorðið er hraðinn í tækniumhverfinu og rannsóknarumhverfinu svo mikill að maður getur misst af því að vera fyrstur með útgáfu út af viku til eða frá. Þá skiptir rosalega miklu máli að skriffinnska hamli ekki hraða rannsóknanna, þó að hún bæti vonandi gæði þeirra.